FjónKoksitmedbıv goy ue CNumyê zi r
Kort sem sýnir staðsetningu Fjóns í Danmörku
Fjón (danska: Fyn) er önnur til þriðja stærsta eyja Danmerkur, eftir því hvort Límfjörðurinn er opinn í báða enda eða ekki. Að flatarmáli er eyjan 2.984,56 km² og er íbúafjöldi 466.284 (2015). Höfin umhverfis Fjón eru suður-Fjónska eyjarhafið, Litlabelti, Kattegat, Stórabelti og Lundborgarbeltið. Eyjarnar umhverfis Fjón eru Langeland, Thurø, Tåsinge, Æbelø, Ærø ásamt 90 öðrum smáeyjum.
Kaupstaðir Fjóns eftir íbúafjölda:
- Óðinsvé: 152.060
 - Svendborg: 27.199
 - Nyborg: 16.043
 - Middelfart: 13.645
 - Fåborg: 7.234
 - Assens: 5.965
 - Kerteminde: 5.775
 - Bogense: 3.499
 
Hæsti punktur Fjóns er Frøbjerg Bavnehøj sem er 131 metri.